Misogljáð eggaldin
1 stórt eggaldin
2 msk ólífuolía til að pensla eggaldinið
smá sítrónusalt
4 msk ólífuolía
3 msk hvítt misomauk
1 msk hrísgrjónaedik
1 msk sojasósa
1 msk hlynsíróp
1 tsk sesamolía
Toppið með:
2 stk vorlaukar
1 msk sesamfræ
1/4 rauð paprika
Smá kóríander
Hitið ofninn í 190 gráður.
Skerið eggaldin í ca 1 cm þykkar sneiðar og setjið á ofnplötu með bökunnarpappír. Penslið smá ólífuolíu yfir hverja sneið og setjið smá sítrónusalt yfir og bakið í 20 mínútur.Á meðan hrærið ólífuolíu, misomauki, hrísgrjónaediki, sojasósu, hlynsírópi og sesamolíu saman í skál.
Eftir 20 mín snúðu þá eggaldinsneiðunum við og penslaðu smá miso legi yfir hverja sneið og grillaðu í 4-5 mín. Passaðu bara að brenna þær ekki.
Skerið vorlaukinn, papriku og kóríander.
Þegar eggaldin sneiðarnar eru orðnar vel gljáðar, settu þær þá á fallegan disk og skreyttu með sesamfræjum, vorlauk, papriku og kóríander. Ef til vill smá sítrónubörk.Ég set svo restina af misogljáanum í litla skál ef einhverjir vilja bæta við smá meira ofan á.