Skýja shake

  • 3 frosnir bananar

  • 2 tsk blátt spirulina duft

  • 1 tsk vanilla

  • 1 bolli laktósafrí bláberja ab- mjólk

Öllu blandað saman í kröftugum blandara.

Takið glas og skreytið með hreinni grískri jógúrt örlítið í hliðunum, hellið svo shake-inum ofan í glasið og njótið.

Blátt Spirulína (Phycocyanin) er unnin úr vel þekkta þörungnum spirulína.

Spirulina inniheldur hlutfallslega mjög mikið magn af frábærum næringarefnum. Um 60-70% þessa þörungs er prótín, og í honum er að finna fitusýrurnar GLA (gamma línólen), línólín og AA (arachidonic), vítamín B-12, járn, amínósýrur, RNA og DNA kjarnsýrur, beta-karótein og karóteinóíð, chlorophyll og phytocyanin.

Previous
Previous

Frískandi & góður grænn

Next
Next

Bláberja próteinshake