Matcha morgunverður
Þið ættuð að vera búin að fatta það núna að ég elska Matcha - hérna er einn æðislegur morgunverður
Mild koffínuppörvun, andoxunarefni og næringarríkur með meiru …
1/4 bolli chiafræ
2 msk hempfræ (+1 msk auka til að toppa)
1 bolli vanillu Sproud (eða önnur jurtamjólk og auka 1 tsk vanillu )
2 msk vanillu skyr/ grísk jógúrt eða hafrajógúrt + auka til að toppa búðingin ( laktósafrí Arna eða veru hafravörurnar )
1 msk Kollagen duft @feeliceland (valfrjálst)
1/2 tsk vanilla
1 msk hunang/ hlynsíróp
1/2 -1 tsk gæða matcha duft
Hrærið öllu vel saman í skál og skiptið á milli tveggja glasa sem hægt er að loka eða í tvær krukkur.
Lokaðu ílátunum vel og hristu í 10-20 sekúndur. Toppaðu með extra skyri eða jógúrt smá hempfræjum og smá Matcha dufti.
Settu aftur í ísskáp í nokkra klukkustundir eða yfir nótt.
Njóttu extra vel þessarra frábæra búðings