Döðlunammi
10 ferskar döðlur (medjool)
20 stykki pekanhnetur
100 gr gott dökkt súkkulaði
Smá gróft salt
Skerið döðlurnar í tvennt og takið steininn úr.
Setjið í fat eða á bökunarpappír á stóran disk.
Setjið eina pekan hnetu í hverja döðlu (20 stk)
Bræðið súkkulaðið yfir vatnsbaði.
Dreifið fljótandi heitu súkkulaðinu yfir döðlubitana og stráið því næst smá salti yfir hvern bita.
Setjið inn í ísskáp og kælið, geymist í nokkra daga inn í ísskáp ef þeir verða ekki bara kláraðir um leið.
Einnig má geyma inn í frysti og gæða sér á bita og bita ef ykkur vantar sætan mola í hollari kantinum.