Granola stykki
2 bollar saxaðar hnetur
1/3 bolli kókosmjöl
4 msk graskersfræ
2 msk hempfræ
1 msk collagen @ Feel Iceland (valfrjálst)
1/3 bolli möndlusmjör
1/4 bolli akasíuhunang/ hlynsíróp
2 msk kókosolía
Smá vanilla
smá kanill
100 gr gæða súkkulaði (brætt yfir vatnsbaði)
Hitið hlynsíróp, möndlumjör og kókosolíu saman í potti við lágan hita, hrærið vel saman
Takið af hellunni og látið kólna smá
Bætið því næst restinni nema súkkulaðinu ofaní volgu blönduna.
Setjið svo í form með bökunnarpappír undir eða eins og ég gerði í sílíkon form. Þrýstið blöndunni vel ofan í formið.
Bræðið súkkulaðið yfir vatnsbaði og hellið jafnt yfir botninn.
Kælið - skerið í sneiðar & njótið