Superfood Brownie bitar
Botninn :
1 bolli döðlur, steinlausar frá Muna
1 bolli valhnetur frá Muna ( eða 1/2 bolli valhnetur & 1/2 bolli pekanhnetur)
½ bolli pistasíuhnetur
1 msk chiafræ
2 msk hampfræ
3 msk kakóduft
1 msk brædd kókosolía
1 tsk vanilla
¼ tsk sjávarsalt
¼ bolli þurrkuð trönuber (eða þurrkuð kirsuber eða gojiber)
1 msk heitt vatn, ef þarf
Toppurinn:
100 gr dökkt gæða súkkulaði
1 msk kókosolía
Smá sjávarsalt ofaná
Setjið döðlur, hnetur og ¼ bolla af pistasíuhnetum í matvinnsluvélina og blandið vel saman.
Bætið því næst út í chiafræjum, hampfræjum, kakódufti, kókosolíu, restina af pistasíuhnetunum og vanillu. Kveiktu a matvinnsluvélinni og blandaðu saman en ekki of lengi, mér finnst gott að hafa smá bita. Ef blandan er enn smá þurr skaltu bæta við 1-2 matskeiðum af volgu vatni.
Setjið bökunnarpappír ofaní kassalaga eða ílangt form og pressið deiginu vel niður.
Bræðið súkkulaðið og kókosolíuna yfir vatnsbaði og hellið ofaná botninn.
Frystið í nokkrar klukkustundir, stráið svo smá salt yfir og skerið í litla bita. Setjið í box með loki og geymið í frysti ~ nælið ykkur í mola og mola þegar ykkur langar í næringaríka mola sem eru fullir af góðri fitu, trefjum, steinefnum og orku