Trefjaríkar jarðaberjaískökur með hvítu súkkulaði
Hérna eru á ferðinni æðislegar og ferskar, trefjaríkar litlar ísskökur sem gaman er að gæða sér og bjóða upp á. Geymast vel í frysti og
1.Lag
1 krukka jarðaberjajógúrt @arna
2.Lag
1 bolli frosin jarðaber
1/4 bolli chiafræ
1 msk fljótandi sæta eins og akasíuhunang eða hlynsýróp
3.Lag
100 gr hvítt súkkulaði.
1 tsk kókosolía
Takið bollakökuform (mér finnst sílíkon form virka best fyrir þessa uppskrift) og setjið eina matskeið af jarðaberjajógúrt í botninn í hverju formi. Frystið meðan þið búið til lag númer 2.
Látið jarðaberin þiðna í skál og stappið þau vel, hellið chiafræjum og sætu og hrærið vel saman. Hellið yfir frosnu jarðaberjajógúrtina, 1. lagið. Frystið.
Bræðið hvíta súkkulaðið og kókosolíu yfir vatnsbaði og hellið yfir lag númer 2.
Setjið í frysti yfir nótt.
Skreytið ef til vill með þurkkuðu jarðaberjadufti.
Gott að taka út 5-10 mínútur út úr frysti áður en þið ætlið að njóta.