Bakaðar sætar kartöflur með þeyttum bleikum salatosti, tómat, epla & basilsalsa
3 litlar sætar kartöflur
2-3 msk ólífuolía
1 msk Baharat Líbanon kryddblanda frá Kryddhúsinu
Smá salt
Skerið sætu kartöflurnar langsum í tvennt, setjið á bökunarpappír á bökunarplötu með opnu hliðina upp. Dreifið olíunni yfir sætu kartöflurnar og kryddið með kryddblöndunni og salti.
Bakið í 200 gráðu heitum ofni í u.þ.b. 30 mín.
Hrærður “Whipped” bleikur salatostur (fetaostur)
1 krukka laktósafrír salatostur frá Arna (hellið olíunni af)
1-2 rauðrófur (fer eftir stærð) flysjaðar og skornar í bita ca. 100-150 gr
1/2 msk cumin duft
Sett saman í góða matvinnsluvél og hrært saman þar til þetta er orðið silkimjúkt og með áferð álíka og hummus.
Tómat, epla & basilsalsa
2 tómatar skornir í litla bita
1 epli kjarnhreinsað skorið í litla bita
1 hvítlauksrif, pressað
1/2 box fersk basílíka
4 msk ristaðar kasjúhnetur með chili, saxaðar gróft
Salt & pipar
1/2 dós kjúklingabaunir (vatni hellt af)
2 msk spæsí pestó frá Anna Marta eða annað gott pestó
Byrjið á að blanda kjúklingabaununum við spæsí pestóið. Hrærið svo öllu saman í stóra skál
Marineraður rauðlaukur
~sem ég á alltaf inni í ísskáp því ég elska að poppa upp hvaða mat sem er með þessum marineraða lauk
1 rauðlaukur skorin í þunnar sneiðar á mandólíni
2 msk rifin rauðrófa
1 bolli hvítt edik
1 bolli vatn
1 msk hrásykur
1 msk sjávarsalt
1 tsk rósapiparkorn
Settu laukinn, rauðrófu og piparkornin í krukku
Hitið edik, vatn, sykur og salt í meðalstórum potti við meðalhita. Hrærið þar til sykurinn og saltið eru búin að leysast upp, um það bil 1 mínútu. Látið kólna og hellið yfir laukinn. Setjið til hliðar til að kæla niður í stofuhita, geymið síðan laukinn í ísskápnum. Geymist í allt að 3 vikur.
Setjið saman :
Toppið hverja sæta kartöflusneið með hrærða bleika salatostinum, dreifið svo jafnt úr salsanu þar ofan á og toppið svo með marineruðum rauðlauk og jafnvel smá sítrónuolíu og salti.
Dásamlegur réttur sem er frábær einn og sér þar sem hann er vel samansettur af próteinum, kolvetnum og fitu og stútfullur af vítamínum og góðum efnum fyrir þig.