" Snickers" krukkugrautur
Fyrir 1 krukku:
1/2 bolli grófir hafrar eða haframjöl
1/2 bolli mjólk, að eigin vali
2 msk jógúrt eða skyr (ég notað hafrajógúrt með kaffi og súkkulaði @vera örnudóttir)
1 tsk akasíuhunang
1 tsk kakóduft
Döðlu karamellulag:
4-5 döðlur (lagðar í bleyti í sjóðandi vatn í nokkrar mínútur)
1 msk hnetusmjör @Muna
1 msk af vatninu sem döðlurnar lágu í til að þynna út karamelluna
Торpur:
40 gr dökkt gæða súkkulaði, brætt
1 tsk kókosolía
Blandið haframjöli, mjólk, jógúrt, sætu og kakódufti og hrærið vel saman, settu í krukku eða glös og setjið í ísskáp meðan þið gerið döðlukaramelluna.
Gerðu döðlukarmelluna með því að blanda döðlunum, 1 msk af vatninu sem döðlurnar lágu í og hnetusmjöri saman með töfraskrota þangað til úr er orðin þessi fína karamella.
Setjið döðlukaramelluna ofan á hafrana.
Bæðið súkkulaðið og kókosolíuna saman og hellið yfir karamelludöðluna
Setjið í ísskáp í að minnsta kosti 2 klukkustundir til að lögin nái að stífna að fullu.
Dásamlegur grautur sem ég mæli svo með að þið prófið.