Banana & vanillu Chai smoothie skál

  • 1 frosnin banani

  • 1,5 bolli frosið blómkál

  • 2 msk hampfræ

  • 2 msk möndlusmjör

  • 1 bolli jurta mjólk, ósykruð

  • 2-3 steinlausar döðlur

  • 1 tsk vanilla

  • 1 msk Feel Iceland Kollagen duft

  • 1 msk Prótein duft

  • 1 tsk chai kryddblanda ( sjá uppskrift hér fyrir neðan)

  • Nokkrir klakar

    Chai kryddblanda :

  • 2 tsk malaður kanill

  • 1 1/2 tsk möluð kardimomma

  • 1/2 tsk malað engifer

  • 1/4 tsk malað múskat

  • 1/4 tsk malað negull

    Byrjið á að gera Chai kryddblönduna í krukku.
    Setjið svo allt sem á að vera í þessum dásamlega smoothie í góðan blandara og blandið þar til hann er orðin þykkur og klár. Setjið í fallega skál eða glas og toppið með krönsí granóla

Previous
Previous

Graskerskryddað epla granóla

Next
Next

Haust­graut­ur með kanil­snúða keim