Bláberja & krækiberjaskálar
1 bolli frosin bláber
1/2 bolli frosin krækiber
1 frosinn banani
1 bolli laktósafrí bláberja ab-mjólk frá Arna
1 msk hampfræ
2 msk Feel Iceland kollagen duft
4 msk chiafræ
Öllu nema chiafræjum blandað saman í góðum blandara þar til allt er vel blandað. Hellið í ílát sem hægt er að loka. Hrærið chia fræjunum saman við fjólubláa shake-inn og geymið í ísskáp í nokkra tíma eða yfir nótt. Frábært að toppa með góðu granóla og ferskum berjum.