GULL hafragrautur

  • 1 bolli grófir hafrar/haframjöl

  • 2 bollar mjólk að eigin vali (ég notaði vanillumjólk frá Sproud)

  • 1 msk collagenduft frá t.d. Feel Iceland @feel Iceland

  • 1/2- 1 tsk GULL Kryddblanda frá Kryddhúsinu

  • 1 msk akasíuhunang

  • 1-2 msk saxaðar möndlur og þurrkuð ber

  • 1 msk hempfræ

    - Auka til að toppa grautinn; smá fræ, hnetur eða þurrkaðir ávextir

Setjið allt saman í pott nema það sem þið viljið toppa grautinn með. Hitið við miðlungs hita, hrærið vel og látið grautinn malla nokkrar mínútur. Setjið í 2 skálar og toppið með möndlum, fræjum, þurrkuðum ávöxtum og jafnvel smá skvettu af mjólk.

Previous
Previous

Acai, krækiberja & rauðrófubomba

Next
Next

Kanil- & engiferbakaðar perur með grískri jógúrt