Krydduð blómkáls & sellerírótar súpa með kasjúhnetum
2 msk ólífuolía
350 gr frosið blómkál
1/2 púrrlaukur, skorin í þunna hringi
1/3 sellerírót, skorin í litla kubba
1/2 bolli chili kryddaðar kasjuhnetur @muna_himneskhollusta
1 tsk gullkrydd @kryddhusid
1 kubbur grænmetiskraftur
4-5 bollar vatn
Smá salt og pipar
Allt í pott og látið malla í um 30 mín
Maukað í Vitamix eða góðum blandara, hellið í skálar og toppið með einhverju fallegu og góðu
Þessa súpu toppaði ég með graskersfræjaolíu, ristuðum fræjum, möndluflögum og steinselju